Bloggandi blogg! Ég hef bara ekki haft tíma til að blogga neitt undanfarið því það hefur bara verið brjálað að gera á öllum vígstöðum og því mun ég hafa ,,punktablogg,, að þessu sinni svona rétt til að impra á því sem á daga mína hefur drifið undanfarið

Fimmtudagur:
-Var í auglýsingatökum allan daginn sem var mjög skemmtilegt enda frábært fólk þarna á ferð.
-Saumaklúbbur hjá mér þar sem við stelpurnar úr ML (árgangur 1995) komum saman og rifjuðum upp gamla og nýja tíma s.s. sunnó, stallionfundi, hvíttaðar stjörnur, kameltá, brjóstatíðindi og margt margt fleira. Ein vinkona mín var líka frekar miður sín að hafa drepið fugl og drukkið ösku á sama sólarhringnum!!! Ha ha ha mjög svo skemmtilegt kvöld

Föstudagur/Laugardagur
-Fundur í Ráðherrabústaðnum með Heilbrigðisráðherra og fleirum...aha maður verður að láta til sín taka...
-Gæsun hefst: Gæs numin á brott á flugvellinum, Spútnik, pizzugerð, Hallgrímskirkja, Magadans, át og kjaftagangur heima hjá mér fram á rauða nótt, vaknað og etið og síðan var ferðinni heitið í 7 tíma SVETT (þar sem var algjörlega stigið út fyrir þægindarammann)...Í heildina var þetta algjör snilld

Takk fyrir skemmtilega daga stelpur...
-Var svo búin á því eftir svettið að ég svaf samtals í 14 tíma...hvenær hefur það gerst áður að ég sofi svona mikið????
Sunnudagur:
-Heilagur hvíldardagur
-Heimsókn til Rebekku frænku og við fórum í gegnum gamlar myndir
-Fínpússun fyrir prentun og vísindagreinarskrif...
Helling framundan í næstu viku...skil ekki hvernig mér tekst alltaf að hafa (of) mikið að gera...
LUV, Sonja sem er alveg ótrúlega slök eftir svettið
p.s. Setti inn myndir undir ,,Gæsun o.fl.,,